Ósamið um varahöfn fyrir Herjólf

Herjólfur í Landeyjahöfn.
Herjólfur í Landeyjahöfn. mbl.is/Hjalti Geir

Að sögn Sigríðar Láru Ásbergsdóttur, forseta bæjarstjórnar Ölfuss, hefur ekki verið gengið frá samningum um að Þorlákshöfn verði varahöfn fyrir Herjólf. Vestmannaferjan sigldi áður um Þorlákshöfn en nýverið var byrjað að sigla um Landeyjahöfn.

„Við gerum ráð fyrir að Vegagerðin snúi sér til okkar um það en þeir hafa ekki gert það ennþá,“ sagði Sigríður Lára í samtali við Sunnlenska fréttablaðið.

Áætlanir hafa gert ráð fyrir að Herjólfur gæti þurft að nota varahöfn í 5% tilvika.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert