Nýtt strandveiðitímabil hófst í morgun og samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni voru rúmlega 500 bátar farnir til veiða klukkan hálf átta.
Þetta er síðasta tímabil sumarsins en samtals er leyfilegt að veiða sex þúsund tonn af botnfiski í strandveiðikerfinu í sumar.