Ráðinn framkvæmdastjóri Íslandsstofu

Jón Ásbergsson
Jón Ásbergsson mbl.is/Ásdís

Stjórn Íslandsstofu ákvað á fundi sínum í dag að ráða Jón Ásbergsson sem framkvæmdastjóra Íslandsstofu. Jón var áður framkvæmdastjóri Útflutningsráðs Íslands.

Jón Ásbergsson er viðskiptafræðingur að mennt og hefur  m.a. verið framkvæmdastjóri Loðskinns á Sauðárkróki, Hagkaupa og síðast Útflutningsráðs Íslands.

Íslandsstofa var stofnuð með nýjum lögum í lok apríl á þessu ári og er markmið þeirra að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins, samkvæmt tilkynningu.

Undir merkjumÍslandsstofu er sameinuð starfsemi sem áður var á hendi Útflutningsráðs Íslands og markaðssviðs Ferðamálastofu, auk þess sem náið samstarf verður við utanríkisþjónustuna og kynningarmiðstöðvar lista- og menningar í landinu.

Stofnfundur var haldinn 29. júní sl. og tók Íslandsstofa formlega til starfa 1. júlí. Stjórn Íslandsstofu auglýsti starf  framkvæmdastjóra laust síðla í júní og rann umsóknarfrestur út 11. júlí sl. Þrjátíu umsækjendur voru um starfið.

„Stjórnin fjallaði um ráðningarmálið á sex formlegum fundum, þar sem allar umsóknir voru til skoðunar. Ákveðið var að kalla til viðtals þá umsækjendur, sem stjórnarmenn voru sammála um að helst kæmu til greina í starfið.  

Næsta verkefni stjórnar verður að standa fyrir nýsköpunar- og stefnumótunarvinnu á haustmánuðum í þágu nýrrar Íslandsstofu," samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert