Runólfur Ágústsson skilaði í dag félags- og tryggingamálaráðuneytinu umbeðnum gögnum um fjármál sín og félaga í hans eigu sem ráðherra óskaði bréflega eftir sl. þriðjudag. „Í gær svaraði ég sömuleiðis fyrirspurn ráðuneytisins um laun í uppsagnarfresti á þá leið að ég afþakkaði slíkt," segir í tilkynningu frá Runólfi.