Fundi fulltrúa launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna lauk laust fyrir klukkan 23 í gærkvöldi og hafði þá staðið í allan gærdag.
Niðurstaða er ekki komin í kjaradeiluna og verður því eins dags verkfall í dag.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær næsti fundur verður haldinn, að því er fram kemur í Morgublaðinu í dag.