Lögmaður Pálma Haraldssonar segir, að krafa slitastjórnar Glitnis banka um að Pálmi leggi fram fjölda gagna í tengslum við skaðabótamál, sem slitastjórnin hefur höfðað í New York, sýni að bankinn sé í einskonar veiðiferð og sé á höttunum eftir gögnum, sem hann geti hagnýtt sér.
Krefst lögmaðurinn þess fyrir hönd Pálma, að kröfu bankans verði vísað frá enda liggi ekki enn fyrir úrskurður um þá kröfu Pálma og annarra þeirra, sem skaðabótakrafan beinist gegn, að málinu verði vísað frá dómi í New York.
Í yfirlýsingu lögmanns Pálma segir, að slitastjórnin hafi lagt fram kröfu um skjölin sex dögum eftir að krafa var lögð fram um að málinu yrði vísað frá dómi. Krafa bankans sé á 48 síðum og þess sé meðal annars krafist að Pálmi leggi fram gögn sem sýni hvaða daga hann hafi dvalið í New York, öll gild vegabréf sem hann kunni að hafa og einnig gögn sem tengist Iceland Express, félagi sem í engu tengist skaðabótakröfunni.
Lögmaður Hannesar Smárasonar hefur einnig lagt fram samskonar kröfu.