Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna dráttarvélar sem valt á mótum Snæfellsnesvegar og Vatnaleiðar. Um borð í dráttarvélinni var maður og barn sem flutt voru með þyrlunni til aðhlynningar á Borgarspítalann.
Landhelgisgæslunni barst tilkynning kl. 18:45 og var komin stuttu síðar á Snæfellsnes.