Gleðigangan fer af stað frá Hlemmi kl. 14 í dag, en þeir sem fara fyrir göngunni fara að safnast þar um hádegisbil.
Hinsegin hátíð hefst síða við Arnarhól kl. 15:30. Meðal skemmtikrafta sem koma fram á hátíðinni eru Elektra, Bergþór Pálsson, Haffi Haff, Sigga Beinteins, Friðrik Ómar og Páll Óskar sem stjórnar fjörinu.