Herjólfi tryggður forgangur að Landeyjarhöfn

Herjólfur siglir sína fyrstu ferð frá Vestmannaeyjum í Landeyjahöfn.
Herjólfur siglir sína fyrstu ferð frá Vestmannaeyjum í Landeyjahöfn. Rax / Ragnar Axelsson

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur sett reglugerð fyrir Landeyjarhöfn. Markmið hennar er að leitast við að tryggja örugga aðstöðu til ferjusamgangna milli lands og Vestmannaeyja. Í henni er kveðið á um að áætlunarsigling Vestmannaeyjaferju hafi fortakslausan forgang umfram aðra starfsemi eða rekstur á hafnarsvæðinu.

Siglingastofnun ákvað fyrir þjóðhátíð að banna umferð annarra skipa og báta en Herjólfs á meðan reynsla er fengin á siglingar ferjunnar um höfnina og vegna mikils álags fram yfir þjóðhátíð. Stofnunin taldi einnig nauðsynlegt að takmarka siglingar út frá slysahættu þar sem að svæðið er ófrágengið og framkvæmdir ennþá í gangi. Bannið hefur ekki enn verið numið úr gildi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert