Iceland Express ætlar að hefja áætlunarflug til Glasgow og Stokkhólms næsta sumar. Fyrirhugað er að fljúga þaðan og frá fleiri borgum í Evrópu og á Norðurlöndunum til Bandaríkjanna með viðkomu á Íslandi á leiðinni vestur um haf.
Eins og áður hefur komið fram ætlar Iceland Express að fljúga til New York allan ársins hring, auk þess sem flogið verður til Boston og Chicago næsta sumar.