Lögreglan á Selfossi lagði hald á átján kannabisplöntur sem fundust við húsleit í þéttbýli við suðurströndina í gærkvöldi. Telur lögregla að efnið hafi verið ætlað til sölu.
Aðfararnótt sunnudags hafði lögreglan á Selfossi afskipti af sex ungmennum sem urðu uppvís að notkun kannabisefna í heimahúsi. Ungmennin voru á aldrinum 16-19 ára.
Þeim var komið til síns heima og forráðamönnum gert viðvart um afskiptin auk þess sem barnaverndarnefnd hefur verið send skýrsla um málið.