Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur að höfðu samráði við stjórnlaganefnd og dómsmála- og mannréttindaráðherra ákveðið að kjördagur til stjórnlagaþings verði laugardaginn 27. nóvember nk.
Hlutverk stjórnlagaþings er að endurskoða stjórnarskrá Íslands. Stjórnlagaþingið skal skipað minnst 25 og mest 31 þjóðkjörnum fulltrúa sem kosnir skulu persónukosningu og er landið eitt kjördæmi við þessa kosningu.
Framboðsfrestur fyrir stjórnlagaþingskosningar rennur út 18. október.