Nýr kynningarfulltrúi BSRB

Kolbeinn Óttarsson Proppé
Kolbeinn Óttarsson Proppé

Kolbeinn Óttarsson Proppé, fyrrverandi blaðamaður á Fréttablaðinu, hefur verið ráðinn kynningarfulltrúi BSRB.

Í tilkynningu frá BSRB segir að Kolbeinn muni sinna starfi kynningarfulltrúa og sjá um kynningarmál bandalagsins, samskipti við fjölmiðla og vefsíðu BSRB, auk annarra verkefna.

Kolbeinn er 37 ára gamall, með BA-próf í sagnfræði og íslensku. Hann var síðast blaðamaður á Fréttablaðinu, en hefur starfað við ýmis konar textaskrif síðustu 12 árin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert