Flugfélag Íslands hefur farið þess á leit við Isavia ohf. að flugvöllurinn á Húsavík verði opnaður í dag fyrir flugvélar Flugfélagsins. Isavia hefur samþykkt að verða við þessari beiðni og hefur því flutt slökkvibifreið sína frá flugvellinum á Bakka til Húsavíkur.
Flugfélag Íslands hefur boðað flug frá Reykjavík til Húsavíkur klukkan 14 í dag og síðan tvær ferðir til viðbótar síðdegis. Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna lítur á það sem skýrt verkfallsbrot. Lögðu slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu af
stað til Húsavíkur í gærkvöldi og ætla sér að stöðva flugið þangað.
Landssamband
slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna telur að ákvörðun um að flytja flug
frá Akureyri til Húsavíkur sé skýrt verkfallsbrot. Slökkviliðsmenn af
höfuðborgarsvæðinu og slökkviliðsmenn frá Akureyri ætla að koma í veg
fyrir að hægt verði að fljúga til Húsavíkur meðan á verkfalli stendur.
Isavia segir í tilkynningu, að viðbúnaðarþjónustunni á Húsavíkurflugvelli verði sinnt af starfsmönnum Isavia sem hafi fengið alla þá þjálfun sem krafist er. Ekki verði tekinn mannafli af Keflavíkurflugvelli né Reykjavíkurflugvelli. Flugmálastjórn Íslands hafi samþykkt aukna þjónustu Isavia á Húsavíkurflugvelli hvað varðar slökkvi- og björgunarþjónustu.
Þá tekur Isavia fram, að ekki verði slakað á flugöryggi, hvorki í dag né aðra daga. Verkfallsaðgerðir slökkvimanna sé vegna kjaradeilu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við launanefnd sveitarfélaga, Isavia sé ekki aðili að þessari deilu. Starfsmenn Isavia á flugvellinum á Húsavík, sem muni viðbúnaðarþjónustu, sé ekki félagar í LSS og því ekki í verkfallsaðgerðum.