Kvartað yfir mótmælanda

Oft hefur verið mótmælt utan við Stjórnarráðið í sumar.
Oft hefur verið mótmælt utan við Stjórnarráðið í sumar. mbl.is/Eggert

Lög­regl­an hafði af­skipti af mót­mæl­anda við stjórn­ar­ráðshúsið í fyrra­dag vegna þess að starfs­menn for­sæt­is­ráðuneyt­is­ins kvörtuðu und­an hon­um og töldu mót­mæl­in trufla rík­is­stjórn­ar­fund sem þá stóð yfir. Mót­mæl­and­inn var hand­tek­inn og færður á lög­reglu­stöð vegna þess að hann gaf ekki upp nafn sitt.

Lög­regl­an er með mann á vakt í for­sæt­is­ráðuneyt­inu. Hörður Jó­hann­es­son aðstoðarlög­reglu­stjóri seg­ir að starfs­menn hafi leitað til hans vegna konu sem var að mót­mæla við stjórn­ar­ráðshúsið. Hún hafi verið upp við húsið með flautu og hróp. Þar sem lög­reglumaður­inn hafi talið ómögu­legt að tjónka við kon­una hafi hann kallað eft­ir aðstoð fé­laga sinna. Þeir hafi beðið hana um að færa sig frá hús­inu en hún hafi neitað að hlýða. Þá hafi hún ekki viljað gera grein fyr­ir sér þegar lög­regl­an leitaði eft­ir því og hafi verið hand­tek­in og færð á lög­reglu­stöð af þeim sök­um. Þar hafi málið skýrst og kon­un­inni verið sleppt.

Hvert til­vik metið

Hörður tek­ur það fram að lög­regl­an hafi ekki haft af­skipti af kon­un­inni vegna þess að hún hafi verið að mót­mæla eða gefa fugl­um við stjórn­ar­ráðshúsið, held­ur vegna þess að starfs­menn ráðuneyt­is­ins hafi talið hana trufla starf­semi í hús­inu með hávaða. Þarna séu oft mót­mæli og uppá­kom­ur af ýmsu tagi en fólkið hafi þá yf­ir­leitt látið duga að fara upp í tröpp­urn­ar. Hann seg­ir að hvert til­vik sé metið þegar hús­ráðend­ur kvarti und­an fólki á lóðum sín­um, hvort sem það sé við stjórn­ar­ráðshúsið eða aðrar bygg­ing­ar.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert