Hundruð breskra fjölskyldna bíða enn eftir því að fá greiddar bætur frá hollenska flugfélaginu KLM vegna röskunar sem varð á ferðum þeirra vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Samkvæmt reglum Evrópusambandsins eiga flugfélög að sjá um hótel- og matarkostnað farþega allan þann tíma sem þeir komast ekki leiðar sinnar. Samkvæmt frétt á vef BBC greiðir KLM einungis fyrir fyrsta sólarhringinn. Hótar ESB því að lögsækja flugfélagið greiði það ekki farþegunum bætur. F
Forsvarsmenn KLM segja hins vegar að ekki sé meira greitt til þess að tryggja að þeir þúsundir farþega sem komust ekki leiðar sinnar vegna eldgossins í apríl fái bætur strax.
Flugsamgöngur í Evrópu lömuðust að hluta eða öllu leyti í átján daga í apríl og maí vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Hafði gosið gríðarleg áhrif á afkomu flugfélaga og ferðaskrifstofa og hafa einhver þeirra þegar lagt niður laupana vegna kostnaðar sem gosinu fylgdi.