Flekkudalsá í Dalasýslu var nýlega auglýst í útboði og flest bendir til að Svisslendingurinn Doppler hreppi ána. Hann hefur verið með ár á leigu hérlendis um árabil og hefur nýlega horfið af Melrakkasléttu með Ormarsá og Deildará. Hann er þó eftir sem áður leigutaki Hauku.
Þetta kemur fram á vefnum Vötn og veiði.
Samkvæmt heimildum vefjarins þá var Doppler með hæsta tilboðið og frávikstilboð sem var mun hærra og gerði ráð fyrir að heimilt yrði að veiða með maðk í ánni. Það vildu bændur ekki, en hafa verið í viðræðum við Doppler um það tilboð hans er gerði ráð fyrir aðeins fluguveiði.