Til átaka kom í héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar lögreglan meinaði mótmælendum inngöngu í réttinn til að fylgjast með fyrirtöku máls níumenningana svokallaðra.
Fjöldi lögreglumanna brást við þegar tugir manna réðust inn um dyrnar en lögreglan ætlaði að meina þeim um inngöngu.
Fyrirtaka málsins hefur ekki hafist enn sem komið er en fjöldi fólks er í anddyri réttarins en aðrir fyrir utan sem krefjast nú inngöngu. Barið er á dyr og alls konar krukkur notaðar sem ásláttarhljóðfæri.