Kristján Arason hefur verið ráðinn yfirmaður söludeildar N1. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, segir hlutverk Kristjáns vera að stýra sókn fyrirtækisins á fyrirtækjamarkaði.
Kristján hefur störf í næstu viku en hann hefur starfað hjá Capacent Íslandi samhliða því að sinna ákveðnum verkefnum fyrir íþróttafélagið FH.