Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um bruna í hjólagröfu við Bláfjallaafleggjara fyrr í dag. Eldur virðist hafa kraumað í vélinni í talsverðan tíma. Hún er mikið skemmd ef ekki ónýt.
Heilbrigðiseftirlitið í Hafnarfirði var kallað til vegna gruns um mengun, en bruninn átti sér stað á vatnsverndarsvæði.