Krefjast afsagnar Jóns Bjarnasonar

Jón Bjarnason landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra.
Jón Bjarnason landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra. Sigurður Bogi Sævarsson

Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að Jón Bjarnason landbúnaðar og sjávarútvegsráðherra segi af sér, m.a. í ljósi ummæla hans þess efnis að íslensk stjórnvöld segi ósatt frá því hvernig samningaferli við Evrópusambandið sé háttað og að ríkisstjórninni beri að draga umsókn um aðild að Evrópusambandinu til baka.

Í ályktun sem Ungir jafnaðarmenn sendu frá sér nú síðdegis segjast þeir bregðast ókvæða við „hvatvísum ummælum“ Jóns og segja að ítrekuð dæmi séu um að hann sé ófær um að starfa jafnfætis ríkisstjórninni og beinlínis þvert á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna. „[Þ]á má nefna andstöðu hans við uppstokkun innan stjórnarráðsins og tregleika við eflingu nýliðunar og samkeppni í landbúnaðargeiranum. Í ljósi þess krefjast Ungir jafnaðarmenn tafarlausrar afsagnar Jóns Bjarnasonar af stóli Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka