Háttsettir stjórnendur verslanakeðjunnar Whole Foods Market í Bandaríkjunum, sem rekur nær 300 sælkeraverslanir, eru komnir til landsins.
Þeir ætla að kynna sér veiðar og vinnslu sjávarafla, gæðavottun, fara á sjó og fylgjast með verkun, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Í undirbúningi er að kaupandinn geti rakið ferlið allt frá því að fiskurinn veiðist og þar til hann er afgreiddur út úr búð.