Lömunareitrun PSP hefur greinst í kræklingi úr Eyjafirði. Í sýnum sem nýlega voru tekin til þörungaeiturs-greiningar reyndist magn PSP vera yfir viðmiðunar-mörkum. Matvælastofnun varar því við sterklega við neyslu og tínslu á kræklingi og öðrum skelfiski úr Eyjafirði.
Þörungaeitursgreining sem sýndi að magn PSP var 117 míkrógrömm í hverjum 100 grömmum en mörkin eru 80 míkrógrömm. Fyrir skömmu greindust þörungar af tegundinni Alexandrium yfir viðmiðunarmörkum en þeir valda PSP eitrun.
Áhrif PSP-eitrunar á spendýr eru truflun á taugaboðum sem getur valdið lömun, öndunarerfiðleikum og jafnvel dauða. Þessi gerð þörungaeitrunar hverfur úr skelfiskinum á skömmum tíma eftir að þörungarir hverfa af hafsvæðinu.
Fylgst verður á næstunni með þróun mála.