Mikið er um dýrðir í Mosfellsbæ í dag þar sem bæjarhátíðin Í túninu heima stendur yfir. Hafa bæjarbúar og aðrir fjölmennt í Álafosskvos þar sem hægt er að kaupa grænmeti og fleiri vörur á markaði og einnig hafa margir skemmt sér í tívolíi á Hlégarðstúni.
Hátíðin var sett formlega í gærkvöldi en þá var meðal annars tendraður varðeldur í Ullarnesbrekkum. Í dag eru meðal annars svonefndir Danskir dagar í Hlégarði og í kvöld verða tónleikar þar sem fram koma meðal annars Baggalútur, Hafdís Huld, Ingó og Mosfellingurinn Hreindís Ylfa.
Dagskrá bæjarhátíðar Mosfellsbæjar