Ein af ástæðum þess að maður er nú í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að morðinu í Hafnarfirði er sú að lögreglan fann blóð á skóm hans. Þetta hefur Morgunblaðið eftir áreiðanlegum heimildum.
Lögreglan lagði hald á skóna þegar hún handtók manninn í fyrra skiptið. Við rannsókn kom í ljós að blóð var á skónum og að reynt hefði verið að þrífa það af þeim.
Lífsýnarannsókn á blóðinu er ekki lokið og er því ekki ljóst úr hverjum það er, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.