109 langreyðar á land

Gert að hval í hvalstöðinni í Hvalfirði.
Gert að hval í hvalstöðinni í Hvalfirði. mbl.is/Ómar

Í morg­un kom 109. hval­ur­inn á land í Hval­stöðinni í Hval­f­irði á þess­ari vertíð. Það var Hval­ur 8 sem kom til hafn­ar með langreyði en Hval­ur 9 kom með tvo hvali í stöðina á sunnu­dag­inn.

Á vef Skessu­horns í dag er haft eft­ir Gunn­laugi Fjól­ar Gunn­laugs­syni, vinnslu­stjóra hjá Hval hf., að veiðarn­ar hafi gengið eins og í sögu, þrátt fyr­ir að þokan hafi legið svo­lítið við strönd­ina að und­an­förnu og skip­in því þurft að sigla lengra eða allt upp í 200 míl­ur út.

Hval­ur hf. hef­ur leyfi til veiða 150 land­reyðar í sum­ar auk 25 dýra, sem ekki náðist að veiða á síðustu vertíð.

Skessu­horn.is

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert