„Við einfaldlega höfðum ekki efni á að sleppa þessu. Spaugstofan var af einhverjum óskiljanlegum ástæðum á lausu“ segir Ari Edwald forstjóri 365 en tilkynnt var í dag að Spaugstofan yrði á dagskrá Stöðvar 2 í vetur.„RÚV vildi ekki hafa okkur áfram í vinnu og okkar starfi er ekki lokið“ sögðu Spaugstofumenn.
Fyrsti Spaugstofuþátturinn á Stöð 2 fer í loftið 9. október.