Preneet Kaur, ráðherra utanríkismála Indlands, opnaði í dag formlega sendiráð Indlands á Íslandi. Viðstaddir voru m.a. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Preneet Kaur er í opinberri heimsókn hér á landi. Hún átti í dag fund með Össuri Skarphéðinssyni en auk þess mun Kaur hitta forseta Íslands.
Kaur heimsækir Alþingi, hittir forseta Alþingis, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, og fundar með utanríkismálanefnd. Þá mun hún kynna sér starfsemi Hellisheiðarvirkjunar og heimsækja Árnessýslu, Akureyri og Mývatn.
Sendiráð Indlands á Íslandi hefur aðsetur á Skúlagötu 17 í Reykjavík.
Sendiráð Indlands