Óvissa meðal ráðherra

Kristján Möller samgönguráðherra segist enn eiga verk ókláruð í ráðuneytinu þegar fréttamenn ræddu við hann við upphaf þingflokksfundar Samfylkingarinnar í morgun. Heimildir Morgunblaðsins herma að Kristján sé á leið úr ríkisstjórn. Þingflokksfundir Vinstri grænna og Samfylkingar standa nú yfir.

Mikil óvissa ríkir meðal ráðherra og þingmanna um hver þarf að taka pokann sinn og hver fær ráðherraembætti í fyrirhugaðri uppstokkun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert