Rafmagnslaust er nú víða á Austurlandi. Þannig mun vera rafmagnslaust víða niðri á Austfjörðum vegna bilunar og einnig er rafmagnslaust á Höfn í Hornafirði en þar mun vera annarri bilun um að kenna. Starfsmenn Landsnets keppast við að koma rafmagni aftur á.
Samkvæmt upplýsingum frá vaktstöð Landsnets varð nokkuð stór truflun í kerfinu og var unnið að því að greiða úr henni. Bilun varð í byggðalínu og mun m.a. hafa orðið truflun á rafmagni frá Eyvindará og niður í Vopnafjörð og víðar niðri á fjörðunum.
Einnig slitnaði strengur við Höfn í Hornafirði sem olli truflun á rafmagni þar.