Víðtæk truflun varð á flutningi raforku í fyrrakvöld. Svo virðist sem atburðarásin hafi byrjað með bilun í rofa í álveri Norðuráls á Grundartanga kl. 20.58 í fyrrakvöld. Allt rafmagn fór af álverinu. Það samsvarar um fjórðungi af heildarálagi í landinu, samkvæmt tilkynningu Landsnets.
Þetta olli keðjuverkandi áhrifum í flutningsnetinu. Töluvert flökt var á spennu um allt land og straumlaust varð um tíma hjá almenningi á Austfjörðum, frá Eyvindará og niður á Vopnafjörð og upp á Hérað. Einnig fór rafmagn af á Höfn í Hornafirði.
Hlutar af álagi álversins í Straumsvík og Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga leystu einnig út. Truflunin varð einnig til þess að nokkrar vélar virkjana slógu út um stund, m.a. í Hellisheiðarvirkjun og í Lagarfossvirkjun.
„Það kemur gríðarlegt högg á kerfið sem veldur því að ljósin blikka tvisvar um allt land og í kjölfarið leysir Norðurál út. Það er einn af stærstu viðskiptavinum okkar og við þetta varð gríðarlega mikil breyting á orkuflæðinu,“ sagði Guðmundur. Fyrir hádegi í gær hafði ekki fengist fullnægjandi skýring á því hvers vegna almennir neytendur urðu rafmagnslausir í fyrrakvöld. Guðmundur taldi langlíklegast að það hefði stafað af bilun í búnaði fyrir austan.
Hann sagði að við jafn mikla breytingu á raforkuflæði í flutningskerfinu og þá sem varð í fyrrakvöld brygðist flutningskerfið á svæði byggðalínunnar þannig við að það leystist upp í „eyjar“ til að vernda aðra notendur.
Byggðalínan nær frá Hvalfirði norður og austur um land og síðan um Suðurland að Sigölduvirkjun. Við bilunina skiptist flutningskerfið í þrjá hluta, það er Norðurland, Kárahnjúkavirkjun, Fljótsdalsstöð og Fjarðaál, og svo suðvesturhornið.
Hluti vandans er sá að byggðalínan er nú fulllestuð og ber ekki meira álag, að sögn Guðmundar. Ef auka þarf flutning á hennar svæði þarf að styrkja byggðalínukerfið. Það er umfangsmikil og kostnaðarsöm framkvæmd. Í skoðun er m.a. uppbygging línunnar á milli Blönduvirkjunar og Akureyrar með svonefndri Blöndulínu 3.