Síðasta ferð Herjólfs í dag hefur verið felld niður vegna veðurs. Þar með hefur öllum ferðum Herjólfs í dag verið aflýst en afar hvasst er á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum.
Ferðin átti að vera frá Vestmannaeyjum kl.21:00 og frá Landeyjahöfn kl.22:30.
Farþegar sem eiga bókað í þessar ferðir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við afgreiðslustaði Herjólfs í s: 481-2800 og 483-3413.
Næsta ferð er áætluð frá Vestmannaeyjum kl. 9:00 og frá Landeyjahöfn kl.10:30 á morgun, 5.september.