Þrotabú Landsbankans gæti átt yfir 300 milljarða króna í reiðufé um áramótin verði endurheimtur eins góðar og útlit er fyrir. Þetta kom fram í fréttum Sjónvarpsins í kvöld.
Gangi spár um endurheimtur eftir gæti þrotabúið greitt allar fyrirliggjandi forgangskröfur, að því er kom fram í fréttum Sjónvarpsins. Þær kröfur eru 1161 milljarður vegna Icesave og 158 milljarðar vegna innlána.