Það voru heldur betur umskipti hjá veðurguðunum í Reykjanesbæ í kvöld. Það var sannkallaður veðurofsi á tíunda tímanum í kvöld með roki og rigningu en aðeins fáeinum mínútum fyrir flugeldasýningu Ljósanætur hurfu ský af himni, sem varð stjörnubjartur og flugeldum var skotið upp í hægum vindi.
Sýningin var glæsileg og nokkuð víst að veðurguðunum líkar við flugeldasýningar Ljósanætur, að því er fram kemur á vef Víkurfrétta.