Dómnefnd um umsækjendur um embætti hæstaréttardómara hefur skilað umsögn sinni um mat á hæfni umsækjenda um dómaraembætti við Hæstarétt. Fjórir sóttu um en dómnefndin mat þá Viðar Má Matthíasson prófessor og Þorgeir Örlygsson, dómara við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg hæfasta.
AUk þeirra sóttu þau Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari og Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari um stöðu dómara við Hæstarétt Íslands sem var auglýst í lok maí sl.