Nokkrir unglingspiltar, 13-14 ára, hafa játað á sig veggjakrot í Breiðholti um helgina. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu varð leikskóli illilega fyrir barðinu á skemmdarvörgum en veggjakrotararnir létu líka til sína taka utan við leikskólann.