Ríkisstjórnin hefur staðið fyrir aðför að þeim sem höllustum fæti standa í þjóðfélaginu, að mati Gylfa Arnbjörnssonar forseta ASÍ. Gylfi sat borgarafund um fátækt í Ráðhúsinu í kvöld en hann segir sambandið munu beita sér fyrir bættum kjörum efnalítils fólks í kjarasamningunum í haust.
„Mér fannst þetta góður fundur. Margt sem þarna kom fram er í samræmi við okkar málflutning og kröfur. Hvernig sem menn vilja gagnrýna verkalýðshreyfinguna og hennar störf er það nú einu sinni þannig að það var Alþýðusambandið sem samdi um það í febrúar 2008 að hækka lægstu laun mjög mikið. Samhliða því tryggðum við að það yrðu miklar hækkanir hjá bæði örorku- og ellilífeyrisþegum og jafnframt í atvinnuleysisbótum.“
Náðu fram 32% hækkun lægstu launa
Gylfi víkur því næst að árangri ASÍ í síðustu kjaraviðræðum.
„Við kláruðum síðan okkar kjarasamning. Þegar upp er staðið höfum við hækkað lægstu laun um 32% á þessu samningstímabili, 38.000 krónur í lágmarkslaunum plús hækkun í skattleysismörkum, til viðbótar við þá verðtryggingu sem við sömdum um árið 2006.
Hins vegar hefur ríkisstjórnin, bæði síðasta og þessi sem nú er við völd, ákveðið að frysta bætur almannatrygginga.
Það er auðvitað mikið áhyggjuefni og við lýstum áhyggjum yfir því að það væri gert enda er þetta veikasti hópurinn í samfélaginu, tekjulega séð.
Þessi aðför er enn upp á teningnum á næsta ári af hálfu ríkisstjórnarinnar. Alþýðusambandið hefur komið því á framfæri við ríkisstjórnina að við munum ekki sætta okkur við það aftur að þessi hópur verði látinn afskiptur enn einu sinni.“
- Þannig að þið munuð halda þessu á lofti í kjaraviðræðum í haust?
„Já, það er alveg klárt mál. Það er krafa okkar félagsmanna að það verði staðið vörð um eðlilegar hækkanir hjá þessum hópum.“