Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf. átti lægsta tilboð í rannsóknarborholur vegna Vaðlaheiðarganga. Fjögur fyrirtæki buðu í verkið.
Ræktunarsambandið bauðst til að vinna verkið fyrir 36,9 milljónir sem er 78% af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Verkinu á að vera lokið að fullu fyrir 15. nóvember.