Fer í Þorlákshöfn tvisvar á dag

Herjólfur á siglingu.
Herjólfur á siglingu. mbl.is/Sigurður Bogi

Herjólfur mun fara tvisvar á dag á milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar næstu daga, eða þar til að búið verður að opna Landeyjahöfn, að því er segir í frétt Vegagerðarinnar. Siglingastofnun telur að ekki verði hægt að opna Landeyjahöfn næstu daga. 

Frétt Vegagerðarinnar er svohljóðandi:

„Að mati Siglingastofnunar verður ekki hægt að opna Landeyjahöfn næstu daga vegna gosefnanna sem borist hafa með þrálátri austanátt í mynni nýju hafnarinnar. Svo óheppilega vill til að bilanir hafa tafið dæluskip sem liggur í höfn í Reykjavík en ráðgert er að það sigli í Landeyjahöfn á föstudag.

Ákveðið hefur verið að Herjólfur sigli því næstu daga til Þorlákshafnar eða þar til Landeyjahöfn opnar. Unnið er að áætlun fyrir næstu daga og verður hún birt í fyrramálið en farnar verða tvær ferðir á dag.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert