„Gegnsæ spilling"

Jón Gnarr heldur af stað til Brussel í gær þar …
Jón Gnarr heldur af stað til Brussel í gær þar sem hann situr ráðstefnu í dag. mbl.is/Golli

Jón Gnarr, borgarstjóri, segir í viðtali við frönsku AFP fréttastofuna, að hann hefði aldrei boðið sig fram í borgarstjórn Reykjavíkur ef kreppan hefði ekki skollið á. Hann hafi hins vegar fengið nóg af þróun mála hér á landi og viljað grípa inn í hana með einhverjum hætti. „Ég leit á þetta sem borgaralega skyldu mína," segir hann.

„Ég leit á þetta sem borgaralega skyldu mína," segir hann. „Í tvö ár hefur safnast upp svo mikil reiði, tortryggni og ofsóknaræði í þjóðfélaginu og ég vildi reyna að finna eitthvað mótvægi."  

AFP segir, að Jón starfi eftir þeirri metnaðarfullu áætlun, að fá borgarbúa til að brosa þrátt fyrir efnahagserfiðleikana sem við er að etja. Fréttamaður AFP fjallar um kosningabaráttu Besta flokksins og kosningaloforð á borð við ísbjörn í Húsdýragarðinn; raunar segir Jón að öll þau loforð hafi verið gefin til þess eins að svíkja þau.

Jón segir, að í hefðbundnum stjórnmálum standi stjórnmálamenn venjulega ekki við það sem þeir hafa lofað og reyni síðan að blekkja sig út úr því. „Við reynum því að lofa sem fæstu og gera frekar eitthvað," segir hann. 

Haft er eftir Óttari Proppé, borgarfulltrúa, að árangur Besta flokksins megi rekja til þess að fólk hafi viljað breytingar. Fréttamaður AFP segir, að hvað sem öðru líði sé Jón fulltrúi breytinga og í viðtalinu hafi hann gefið einkennilegar yfirlýsingar milli hlátursroka.

Spurður um næsta verkefni sitt svaraði Jón, að það sé að gera Reykjavík að vinabæ Múmíndalsins. Spurður um hvað hann skoði  helst á netinu svarar hann: Aðallega klám, og hlær. 

Og einkunnarorð hans eru, auðvitað, gegnsæ spilling: „Við ætlum ekkert að fela spillinguna."  

Frétt AFP 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka