Tvær síðustu ferðir Herjólfs sem áætlaðar voru í dag 8. september falla niður. Tilkynnt verður síðar í dag um siglingar á morgun 9.september, að því er fram kemur í tilkynningu.
Líkt og fram hefur komið sigldi Herjólfur til Þorlákshafar í morgun þar sem ekki er hægt að sigla um Landeyjarhöfn.
Farþegar sem áttu bókað í þessar ferðir eru beðnir um að hafa samband við afgreiðslu í s: 481-2800 og 483-3413