Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, velti því fyrir sér á Alþingi í dag hvort Þráinn Bertelsson, sem nú er genginn í þingflokk Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, muni tilheyra órólegu deildinni í flokknum eða þeim armi sem sé orðinn uppiskroppa með loforð til að svíkja.
Sagðist Sigurður Kári senda Þráni sínar innilegust samúðarkveðjur yfir að vera genginn til liðs við þverklofinn þingflokk.