Hæg breytileg átt verður á landinu í dag, skýjað að mestu og víða smáskúrir eða þokusúld. Hiti 8 til 15 stig.
Á hföuðborgarsvæðinu verður hægviðri, en vestan 3-8 undir kvöld. Dálitlir skúrir og hiti 10 til 15 stig.
Á morgun, sunnudag, verður suðaustan 8-15 m/s og rigning, en 3-8 norðaustanlands og
þurrt fram eftir degi. Hægari suðvestanátt vestanlands um kvöldið með
skúrum. Hiti 9 til 16 stig.
Klukkan þrjú í nótt var hæg breytileg átt á landinu. Víða smáskúrir eða þokusúld sunnan- og austanlands, annars skýjað að mestu en þurrt. Hiti 5 til 12 stig, svalast á Þingvöllum.