Tvær þingsályktunartillögur voru lagðar fram á Alþingi nú síðdegis um málshöfðun gegn ráðherrum ásamt með skýrslu þingmannanefndar, sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og hvort ástæða væri til að kalla saman landsdóm.
Meirihluti þingmannanefndar, þingmenn Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar, leggur til að höfðað verði sakamál fyrir landsdómi gegn fjórum fyrrverandi ráðherrum vegna refsiverðrar háttsemi þeirra í embættisfærslu sinni á árinu 2008. Um er að ræða Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, Árna M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra og Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra.
Þingmenn Samfylkingarinnar í þingmannanefndinni leggja til að höfðað verði mál gegn þremur fyrrverandi ráðherrum, þeim Geir, Ingibjörgu og Árna. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins í nefndinni standa ekki að þessum tillögum.
Þingsályktunartillaga VG, Framsóknarflokks og Hreyfingarinnar
Þingsályktunartillaga Samfylkingarinnar