Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti í morgun fund með Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína í borginni Tianjin. Kínverska fréttastofan Xinhua hefur eftir Wen, að hann vonist til að tengsl landanna muni eflast og komast á nýtt stig en 40 ár verða á næsta ári liðin frá því löndin tóku upp stjórnmálasamband.
Að sögn Xinhua sagði Wen að samskipti landanna tveggja hefðu einkennst af jafnræði, gagnkvæmri virðingu og stuðningi. Vonandi myndu löndin vinna auka samvinnu og viðskipti sín og nefndi einkum samvinnu við jarðhitanýtingu og rannsóknir á jöklum, eldfjöllum og heimskautasvæðum til að öðlast dýpri skilning á loftslagsbreytingum.
Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta Íslands ítrekaði Wen að kínversk stjórnvöld hefðu ákveðið að styðja Ísland sérstaklega á tímum efnahagslegra erfiðleika og væri gjaldeyrisskiptasamningurinn milli Seðlabanka Kína og Seðlabanka Íslands sem undirritaður var í sumar mikilvægur hornsteinn slíks samstarfs. Kínverjar myndu innan þess ramma leggja kapp á aukinn innflutning á íslenskum vörum og víðtækt samstarf við íslensk verkfræðifyrirtæki og orkufyrirtæki sem stuðla myndi að aukinni þátttöku þeirra í jarðhitavæðingu Kína. Það væri einlæg von kínverskra stjórnvalda að slíkt fjölþætt samstarf, bæði á sviði peningamála, viðskipta og framkvæmda, myndi auðvelda endurreisn íslensks efnahagslífs.Ólafur Ragnar þakkaði Wen, að sögn Xinhua, fyrir þá aðstoð sem Kínverjar hefðu veitt Íslendingum þegar þeir takast á við afleiðingar fjármálakreppunnar. Sagði hann að Íslendingar litu á Kínverja sem trausta vini.
Þeir Ólafur Ragnar og Wen sækja fund Alþjóðaheimsviðskiptaráðsins, sem haldinn er í Tianjin. Fundinn sitja um 1400 fulltrúar frá 88 ríkjum.