Stjórnvöld munu koma til móts við ábendingar aðila í gagnaversiðnaðinum og tryggja að Ísland standi fullkomlega jafnfætis samkeppnisaðilum innan ESB enda eindreginn vilji stjórnvalda að gagnaver byggist upp hér á landi.
Þetta kemur fram í bréfi Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra til stjórnar Samtaka gagnaversfyrirtækja sem sent var í síðustu viku.
Fram kemur, að unnið hafi verið að útfærslu lausna á tveimur þáttum sem varði virðisaukaskatt á þjónustu gagnavera. Annars vegar sé um að ræða innheimtu virðisaukaskatts af búnaði sem viðskiptavinir innan Evrópusambandsins eiga sjálfir en senda til þjónustu í gagnaverum í öðrum löndum. Hins vegar sé um að ræða innheimtu virðisaukaskatts af seldri þjónustu gagnavera til erlendra viðskiptavina.
Samtök gagnaverafyrirtækja hafa bent á að jafnstaða íslenskra gagnavera gagnvart keppinautum innan ESB sé forsenda frekari uppbyggingar gagnaveraiðnaðar hér á landi. Segir iðnaðarráðuneytið, að í samræmi við áherslu íslenskra stjórnvalda á að skapa hátæknistörf, ýta undir græna hagkerfið og auka fjölbreytni í orkunýtingu hér landi hafi verið unnið að því að koma til móts við óskir gagnaveraiðnaðarins.
Útfærslu á að ljúka á næstu dögum svo gildistaka breyttra reglna geti orðið sem fyrst.