Umræða um skýrslu þingmannanefndar, sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, hófst á ný kl. 10:45 á Alþingi með ræðu forsætisráðherra. Hægt er að fylgjast með umræðunni í beinni útsendingu með því að smella á „Umræða um skýrslu“ í renningnum hér á forsíðu mbl.is.
Þingfundurinn átti að hefjast kl. 10:30 en var frestað um 15 mínútur vegna þess að ríkisstjórnarfundur tafðist.
Yfir 20 eru á mælendaskrá.