Ný staða á næstu dögum

SP-Fjármögnun er að ljúka endurreikningi bílalána.
SP-Fjármögnun er að ljúka endurreikningi bílalána. mbl.is

SP-Fjármögnun sendir viðskiptavinum sínum upplýsingar á næstu dögum um nýja stöðu samninga, í kjölfar dóms Hæstaréttar um vexti gengisbundinna bílalána.

SP-Fjármögnun mun endurútreikna erlenda bílasamninga eins fljótt og mögulegt er samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar í dag. Samkvæmt dómnum ber fjármálafyrirtækjum að endurútreikna lánin með almennum vöxtum Seðlabanka Íslands eins og þeir eru á hverjum tíma. 

SP-Fjármögnun hefur síðan í júní unnið að endurútreikningum lánanna miðað við mismunandi hugsanlegar niðurstöður dómsins og er sú vinna langt komin, samkvæmt tilkynningu. Fyrirtækið mun senda út upplýsingar til viðskiptavina sinna á næstu dögum þar sem fram kemur ný staða samninga sem tekur mið af almennum vöxtum Seðlabanka Íslands.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert