Siglingamálastofnun segir, að dýpi í hafnarmynni Landeyjahafnar sé nú orðið nægjanlegt til að Herjólfur geti siglt í höfnina. Perlan mun þó í fáeina daga halda áfram að hreinsa gosefnin úr innsiglingu og höfninni sjálfri.
Stofnunin segir, að aðstæður við
Landeyjahöfn hafi undanfarna daga verið góðar og dýpkunaraðgerðir
Perlunnar gengið vel eins og vonir stóðu til.