Flestir fylgjandi málshöfðun

Stuðningsmenn Samfylkingarinnar vilja málshöfðun gegn ráðherrum Sjálfstæðisflokksins en síður gegn …
Stuðningsmenn Samfylkingarinnar vilja málshöfðun gegn ráðherrum Sjálfstæðisflokksins en síður gegn ráðherrum Samfylkingarinnar mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Meirihluti almennings er fylgjandi málshöfðun gegn ráðherrum ef marka má nýja skoðanakönnun sem MMR hefur gert. Áberandi munur er á viðhorfi til málshöfðunar eftir stuðningi við stjórnmálaflokka.

Yfir 60% svarenda sögðust fylgjandi því að höfða beri sakamál fyrir landsdómi gegn fyrrverandi ráðherrunum Árna M. Mathiesen (66,3%), Geir H. Haarde (64,2%) og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur (60,4%). Nokkuð færri eða 51,8% sögðust fylgjandi því að höfða beri sakamál fyrir landsdómi gegn Björgvin G. Sigurðssyni fyrrverandi viðskiptaráðherra.

Samfylkingarfólk vill bara höfða mál gegn sjálfstæðismönnum

Verulegur munur mældist á afstöðu svarenda eftir stuðningi þeirra við stjórnmálaflokka. Þannig voru rétt um þriðjungur sjálfstæðismanna sem sögðust hlynntir málshöfðun gegn einhverjum ráðherranna.

Þá voru um 60% stuðningsmanna Samfylkingarinnar fylgjandi málshöfðun gegn Árna M. Mathiesen og Geir H. Haarde en undir 40% þeirra sögðust fylgjandi málshöfðun gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Björgvin G. Sigurðssyni.

Þá var meirihluti Vinstri-grænna og framsóknarmanna fylgjandi málshöfðun gegn öllum fyrrverandi ráðherrunum fjórum (á bilinu 63%-81% stuðningsmanna Vinstri-grænna og Framsóknarflokksins sögðust hlynntir málshöfðun). Þá voru 79% til 93% þeirra sem kváðust styðja aðra stjórnmálaflokka vera fylgjandi málshöfðun gegn ráðherrunum.

Könnunin 

Árni M. Mathiesen
Árni M. Mathiesen norden.org/Magnus Fröderberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert